DEVON
Devon er hugbúnaðarfyrirtæki sem var stofnað árið 2022.
Hjá fyrirtækinu starfar góður hópur sérfræðinga með mikla reynslu úr hugbúnaðargerð fyrir fjármálamarkaðinn.
Núverandi áherslur fyrirtækisins eru á þróun á nýju lífeyriskerfi, Cala, sem heldur utan um iðgjöld, réttindaútreikning og lífeyrisgreiðslur sjóðsfélaga.
Villuprófanir skilagreina
Í byrjun árs 2023 útfærði Devon lausn sem villuprófar skilagreinar launagreiðenda skv. www.skilagrein.is. Með því að senda inn skilagreinar til villuprófunar fyrir útgreiðslur launa, geta launagreiðendur gert leiðréttingar og fyrirbyggt vandasama vinnu í leiðréttingar eftir launakeyrslur.
Brú lífeyrissjóður er búið að setja upp þessa lausn og hafa launakerfin Kjarni frá Origo og H3-laun frá Advania útfært stuðning við þetta villuprófanaferli. Sjá nánar fréttatilkynningu frá Brú: Ný vefþjónusta – villuprófun lífeyrisskilagreina.
Lífeyrisreiknivél
Haustið 2023 útfærði Devon lífeyrisreiknivél í samvinnu við Brú lífeyrissjóð. Sjá nánar fréttatilkynningu frá Brú: Ný reiknivél lífeyris.
Lífeyrisreiknivélin vinnur á móti réttindatöflum mismunandi deilda sjóðsins og reiknar væntar lífeyrisgreiðslur miðað við áætlaða launa- og verðbólguþróun.
Mannauður
Arnar Heimisson
Björn Huldar Björnsson
Hrafn Jóhannesson
Hrannar Örn Jóhannsson
Ívar Örn Pétursson
Svanur Jóhannesson
Þorvaldur Örn Arnarson
Þjónustuborð Devon
Þjónustuborð fyrir viðskiptavini Devon.
Hafið samband við devon[hjá]devon.is til að sækja um aðgang að þjónustuborði.
Hafa samband
Best er að hafa samband með því að senda tölvupóst á netfangið devon[hjá]devon.is